Íslandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 27. september (MFN)

2023-09-25 18:13

Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 27. september 2023.

Boðnir verða út flokkarnir ISB CBF 27 og ISB CBI 29.

Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokkanna ISB CB 23 og ISB CBI 24 eiga þess kost að selja bréf í flokkunum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfanna er fyrirfram ákveðið og hreint verð í ISB CB 23 er 99,8118 (ávöxtunarkrafa 9,65%) og ISB CBI 24 er 99,5810 (ávöxtunarkrafa 4,50%).

Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.

Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 4. október 2023.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 27. september 2023.

Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýn um að skapa virði til framtíðar með því að veita framúrskarandi þjónustu, vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið A3 frá Moody’s Investor Services og BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.


support@mfn.se (mfn.se)
MFN - www.mfn.se

Marknadsöversikt

Stockholmsbörsen, OMXS30

I dag
-
Senast
-
{point.key}

Världsindex

Index +/- % Senast
DAX - -
Hang Seng - -
Nikkei - -

Valutor

Valuta +/- % Senast
USD/SEK - -
EUR/SEK - -
GBP/SEK - -
EUR/USD - -

Räntor

Ränta +/- % Senast
5-års ränta - -
10-års ränta - -

Råvaror

Råvara +/- % Senast
Guld - -
Silver - -
Koppar - -