SOLID CLOUDS HF. – Nasdaq Iceland samþykkir töku hlutabréfa úr viðskiptum


Igår, 18:33

Vísað er til tilkynninga Solid Clouds hf. frá 16. og 26. nóvember 2026. Nasdaq Iceland hf. hefur í dag samþykkt beiðni félagsins um að hlutabréf þess (auðkenni SOLID, ISIN IS0000033173) verði tekin úr viðskiptum á Nasdaq First North Growth Market Iceland, sbr. tilkynningu Nasdaq Iceland sem birt var 27. nóvember 2026.

Síðasti viðskiptadagur með hlutabréf félagsins á First North verður föstudagurinn 22.
janúar 2027. Fram að þeim degi geta hluthafar átt viðskipti með bréfin í gegnum sinn
verðbréfamiðlara með sama hætti og áður.

Eftir afskráningu verða hlutabréf félagsins áfram rafrænt skráð í verðbréfamiðstöð og
eignarhlutir hluthafa haldast óbreyttir. Viðskipti verða þó ekki lengur á skipulegum
markaði og seljanleiki bréfanna getur minnkað. Félagið mun áfram halda aðalfund og
birta ársreikning í samræmi við lög um hlutafélög. Upplýsingar til hluthafa verða birtar á
vef félagsins, solidclouds.com.

Fjárfestatengsl:
Egill Örn Sigurjónsson, framkvæmdastjóri
Netfang: egillsig@solidclouds.com

Viðhengi

SOLID CLOUDS HF. – Nasdaq Iceland samþykkir töku hlutabréfa úr viðskiptum

Läs mer på MFN



Marknadsöversikt

1 DAG %

Senast

1 mån