Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 35


1 september, 10:45

Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 11. ágúst 2025 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum, sem upphaflega var tilkynnt um 7. júlí 2025. Í viku 35 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 2.187.687 eigin hluti að kaupverði alls kr. 271.629.158 eins og nánar er greint í þessari tilkynningu.

Í viku 35 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 2.187.687 eigin hluti að kaupverði alls kr. 271.629.158 eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning
Tími
Keyptir hlutir
Viðskiptaverð
Kaupverð (kr)
Eigin hlutir eftir viðskipti
25.8.25
15:22
100.000
125,75
12.575.000
34.101.953
25.8.25
15:23
250.000
125,75
31.437.500
34.351.953
26.8.25
09:36
200.000
125,75
25.150.000
34.551.953
26.8.25
15:29
200.000
124,50
24.900.000
34.751.953
27.8.25
09:45
200.000
125,00
25.000.000
34.951.953
27.8.25
10:21
200.000
124,50
24.900.000
35.151.953
28.8.25
09:40
200.000
124,75
24.950.000
35.351.953
28.8.25
11:14
200.000
123,00
24.600.000
35.551.953
29.8.25
12:16
450.000
122,50
55.125.000
36.001.953
29.8.25
13:35
187.687
122,50
22.991.658
36.189.640
Samtals vika 35
2.187.687
271.629.158

Fyrir framangreind viðskipti í viku 35 átti bankinn 34.001.953, sem nemur 1,81% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 5.037.687 hluti, sem nemur 0,27% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 630.391.658 í umferðinni.

Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 9 milljón hluti sem jafngildir 0,48% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 12. ágúst síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. september 2025.

Bankinn á samtals 36.189.640 eigin hluti eða sem nemur 1,92% af útgefnum hlutum í bankanum.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur 1275/2024 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.

Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is

Viðhengi
Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 35

Läs mer på MFN



Marknadsöversikt

1 DAG %

Senast

1 mån