Niðurstöður hluthafafundar Íslandsbanka hf. 19. janúar 2026


Igår, 18:15

Hluthafafundur Íslandsbanka hf. var haldinn mánudaginn 19. janúar 2026, kl. 16:00, á hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Jafnframt var gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum.

Eftirfarandi eru niðurstöður fundarins:
1. Kosning stjórnar, varastjórnar bankans og formanns stjórnar

Sjálfkjörið var í stjórn bankans og stöður varamanna án sérstakrar atkvæðagreiðslu. Í stjórn Íslandsbanka sitja því nú eftirfarandi sjö stjórnarmenn:

  • Haukur Örn Birgisson
  • Heiðar Guðjónsson
  • Helga Hlín Hákonardóttir
  • Margrét Pétursdóttir
  • Stefán Pétursson
  • Stefán Sigurðsson
  • Valgerður Hrund Skúladóttir

Heiðar Guðjónsson var kjörinn formaður stjórnar.

Varamenn í stjórn Íslandsbanka eru:

  • Herdís Gunnarsdóttir
  • Magnús E. Björnsson

2. Önnur mál

Fleira var ekki rætt og fundi slitið kl. 16:38.

Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is

Viðhengi
Niðurstöður Hluthafafundar Íslandsbanka 2026 19 Janúar 2026

Läs mer på MFN



Marknadsöversikt

1 DAG %

Senast

1 mån