Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 40


Idag, 11:05

Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 1. október 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum. Í viku 40 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 700.000 eigin hluti að kaupverði alls 98.410.000 kr. eins og nánar er greint í þessari tilkynningu.

Í viku 40 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 700.000 eigin hluti að kaupverði alls 98.410.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dags
Tími
Keyptir hlutir
Viðskiptaverð
Kaupverð (kr)
Eigin hlutir eftir viðskipti
2.10.2026
11:07:39
200.000
140,80
28.160.000
98.816.256
2.10.2026
14:22:46
300.000
140,50
42.150.000
99.116.256
2.10.2026
14:28:33
200.000
140,50
28.100.000
99.316.256

Samtals vika 40
700.000

98.410.000

Fyrir framangreind viðskipti í viku 40, átti bankinn 98.616.256 hluti, sem samsvarar 5,63% af útgefnum hlutum.

Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 25 milljón hluti sem jafngildir um 1,43% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 3.000.000.000. Endurkaupin hófust 2. október síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 31. desember 2026.

Bankinn á samtals 99.316.256 eigin hluti eða sem nemur 5,66% af útgefnum hlutum í bankanum.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 1290/2025 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum var fyrirliggjandi.

Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is
Fyrirspurnir frá fjölmiðlum, pr@islandsbanki.is

Läs mer på MFN



Marknadsöversikt

1 DAG %

Senast

1 mån