Hæstiréttur kvað í dag upp dóm í máli sem höfðað var gegn Arion banka og snéri að skilmálum tiltekins íbúðaláns sem innihélt ákvæði um breytilega verðtryggða vexti. Dómurinn telur að skilmálar lánsins, sem kveða á um heimildir bankans til breytinga á vöxtum, séu lögmætir og staðfesti þar með dóm Landsréttar í málinu.

Dómstólar eiga eftir að kveða upp sinn dóm varðandi vaxtabreytingaskilmála óverðtryggðra íbúðalánaArion banka. Skilmálar þeirra lána eru sambærilegir þeim sem fjallað er um í dómi Hæstaréttar frá því í dag að því undanskildu að þeir vísa einnig til vaxta sem Seðlabankinn ákveður.
Í samræmi við tilkynningu bankans frá 15. október sl. þá er það mat bankans að þrátt fyrir að dómstólar kæmust að sambærilegri niðurstöðu í máli bankans varðandi óverðtryggða vexti og hann komst að í málinu gegn Íslandsbanka þann 14. október sl. yrðu fjárhagsleg áhrif slíkrar niðurstöðu óveruleg.  

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:

Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengsl Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760 eða Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, samskiptasvid@arionbanki.is, s. 856 7108.

Viðhengi

Arion banki: Hæstiréttur Íslands telur skilmála verðtryggðs íbúðaláns löglega

Läs mer på MFN

Ämnen i artikeln


Arion Bank SDB

Senast

13,95

1 dag %

−0,36%

1 dag

1 mån

1 år

Marknadsöversikt

OMX Stockholm 30

1 DAG %

0,66%

Senast

2 829,04

1 mån
Loading market data...