Solid Clouds hf.: Tillögur um lækkun hlutafjár og upplýsingar um fyrirhugaða fjármögnun með breytanlegum skuldabréfum
Idag, 10:14
Idag, 10:14
Stjórn Solid Clouds hf. (Nasdaq First North Growth Market Iceland: SOLID) hefur samþykkt að leggja fyrir komandi hluthafafund tillögu um lækkun hlutafjár félagsins til jöfnunar taps. Lækkun hlutafjár félagsins er forsenda þess að félagið geti gefið út nýja hluti á nafnverði, þ.m.t. vegna umbreytingar breytanlegra skuldabréfa, í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga. Tillaga stjórnar miðar við að hlutafé félagsins verði lækkað um 2/3.
Jafnframt mun stjórn leggja til á hluthafafundi félagsins að félaginu verði veitt heimild til að ráðast í fjármögnun með útgáfu breytanlegra skuldabréfa, samtals að höfuðstólsfjárhæð allt að 400.000.000 króna, til að styðja við áframhaldandi rekstur, vöxt og aukningu umfangs markaðssetningar félagsins.
Breytanlegu skuldabréfin, sem munu öll bera 25% fasta ársvexti, eru gefin út í þremur áföngum:
Viðræður félagsins við fjárfesta eru hafnar eins og upplýst var í tilkynningu á markaðinn 4. mars sl. Með tilkynningunni fylgdi uppfærð kynning á stöðu félagsins, þar sem gerð er m.a. grein fyrir verulegri aukningu á virkni spilara í kjölfar nýjustu uppfærslu leiksins Starborne Frontiers og vaxandi arðsemi markaðsstarfs félagsins (e. Return on Ad Spend). Líkt og sagði í tilkynningunni er stefnt að því að ljúka framangreindri fjármögnun á fyrri hluta næsta ársfjórðungs en félagið vinnur að því að tryggja sér lausafjárfjármögnun fram að því.
Fjárfestar sem hafa áhuga á frekari upplýsingum vegna þátttöku er bent á að setja sig í samband við félagið.
Tengiliður / fyrir frekari upplýsingar:
Egill Örn Sigurjónsson, framkvæmdastjóri
egillsig@solidclouds.com
Árétting: Tilkynning þessi felur hvorki í sér skuldbindandi tilboð af hálfu félagsins til sölu né áskorun um kaup á fjármálagerningum.
Viðhengi

Oljepriset
Oljepriset
1 DAG %
Senast

OMX Stockholm 30
2,90%
(12:38)
Boliden
Idag, 12:45
Bred uppgång med gruvaktier i topp
OMX Stockholm 30
1 DAG %
Senast
3 079,75