Íslandsbanki hf.: Íslandsbanki undirritar samning um viðskiptavakt með sértryggð skuldabréf


Idag, 17:55

Íslandsbanki hf. hefur undirritað samninga við Arion banka hf., Kviku hf. og Landsbankann um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf útgefin af Íslandsbanka og skráð á Nasdaq Iceland.

Tilgangur samninganna er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningarnir taka til í því skyni að eðlilegt markaðsverð skapist á skuldabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.

Viðskiptavakar munu daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. Lágmarksfjárhæð miðast við útistandandi nafnverð í hverjum flokki í samræmi við töflu:

Stærð flokks (ma. kr.)
Lágmarkstilboð (m.kr.)
Óverðtryggðir flokkar
Verðtryggðir flokkar
0 - 3
0
0
3 – 5
20
20
5 – 10
60
40
Yfir 10
80
40

Skyldur einstakra viðskiptavaka falla niður á tilteknum viðskiptadegi ef viðskiptavaki hefur átt viðskipti (tilgreind "Standard") með sértryggð skuldabréf fyrir 500 m. kr. að nafnverði samanlagt í þeim flokkum sem samningurinn nær til.

Hámarksmunur kaup- og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreinda töflu:

Árafjöldi til lokagjalddaga
Hámarksmunur óverðtryggðra skuldabréfa
Hámarksmunur verðtryggðra skuldabréf
0 - 6 mánuðir
Ekki skilgreindur hámarksmunur
Ekki skilgreindur hámarksmunur
6 mánuðir - 2 ár
0,20%
Ekki skilgreindur hámarksmunur
2 - 4 ár
0,30%
0,30%
4 -6 ár
0,35%
0,35%
6 - 9 ár
0,60%
0,60%
9 -12 ár
0,70%
0,70%
12 - 18 ár
1,00%
1,00%
18 ár eða lengra
1,15%
1,15%

Flokkar gefnir út á fljótandi vaxtagrunni, með REIBOR eða aðra sambærilega vexti sem birtir eru opinberlega sem vaxtagrunnur, hafa 0,2% hámarksverðbil á kaup- og sölutilboðum.

Íslandsbanki greiðir viðskiptavökum þóknun og mun veita viðskiptavökum aðgang að verðbréfalánum. Hámarkslán í hverjum flokki sértryggðra skuldabréfa er 320 m.kr. að nafnverði.

Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is
Fyrirspurnir frá fjölmiðlum, pr@islandsbanki.is

Läs mer på MFN



Marknadsöversikt

1 DAG %

Senast

1 mån