Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2026
Idag, 17:31
Idag, 17:31
Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 13,9% á fyrsta ársfjórðungi 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 7. maí kl. 8:30
Lykiltölur á fyrsta ársfjórðungi 2026
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
„Afkoma bankans á fyrsta ársfjórðungi er í samræmi við væntingar og markmið. Tekjur Arion samstæðunnar byggja á fjölbreyttum stoðum sem hefur sveiflujafnandi áhrif og eykur áhættudreifingu. Áfram er samstæðan fjárhagslega sterk og með góða eigin- og lausafjárstöðu sem gerir okkur kleift að efla þjónustu við viðskiptavini enn frekar en einnig takast á við þær margvíslegu áskoranir sem eru í ytra umhverfi.
Í greinum sem ég hef birt undanfarna mánuði hef ég bent á tækifæri til að stuðla að lækkun vaxta hér á landi. Eitt þessara tækifæra fólst í einföldun fjármálakerfisins með það að markmiði að lækka kostnaðinn í kerfinu. Því miður varð ljóst í síðasta mánuði, þegar forviðræðum Arion og Kviku við Samkeppniseftirlitið vegna samrunaáforma félaganna lauk, að afstaða Samkeppniseftirlitsins til samrunans væri það neikvæð að hann myndi ekki ná fram að ganga. Þar með varð ljóst að sú einföldum fjármálakerfisins sem ég tel að hefði verið æskileg og til hagsbóta fyrir viðskiptavini og hluthafa mun ekki ná fram að ganga.
Að auki hef ég bent á þau neikvæðu áhrif sem séríslensk ákvæði í lögum og reglum hafa á vaxtastig. Þar ber fyrst að nefna sértækar kvaðir og álögur sem lagðar eru á fjármálafyrirtæki hér á landi. Skattar á fjármálafyrirtæki eru umtalsvert hærri hér á landi en í löndunum sem við gjarnan berum okkur saman við en engu að síður stendur til að hækka þá enn frekar. Það mun hafa áhrif á kjör og afkomu bankanna og rétt að minna á að hluthafar íslenskra banka eru að langstærstum hluta almenningur, ýmist með beinum hætti eða í gegnum lífeyrissjóði og eignarhald ríkisins.
Það eru jafnframt mikil tækifæri í því að draga úr vægi verðtryggingar hér á landi en hvergi annars staðar í Evrópu eru heimilin hluti af verðtryggingunni. Vissulega hefur verðtryggingin sína kosti en hún á engu að síður sinn þátt í að viðhalda háum vöxtum hér á landi. Ég hef bent á að Danir og Hollendingar hafa fært sín öflugu lífeyriskerfi frá loforðum um tiltekna raunávöxtun og verðtryggingu lífeyris yfir í sveigjanlegri réttindakerfi sem endurspegla betur raunverulega verðmætasköpun í hagkerfinu og dreifa áhættu með sanngjarnari hætti milli kynslóða. Breytingar í þá átt væru gott fyrsta skref til að draga úr vægi verðtryggingar. Um þetta hefur skapast góð og gagnleg umræða sem ég fagna og vona að haldi áfram.
Vegna hárra vaxta hefur undanfarin misseri verið mikil eftirspurn eftir verðtryggðum íbúðalánum og var nokkur vöxtur í lánum til einstaklinga á ársfjórðungnum. Fyrir bankann fylgir sá ókostur verðtryggðum íbúðalánum að þau eru að miklu leyti fjármögnuð með óverðtryggðum hætti, til dæmis í gegnum innlán viðskiptavina. Það leiðir til ójöfnuðar í efnahag bankans, þar sem verðtryggðar eignir eru umtalsvert meiri en verðtryggðar skuldir, og sveiflna í tekjum í takt við verðbólgu og verðbætur. Reiknaðar verðbætur voru umtalsverðar á fyrsta ársfjórðungi enda verðbólga óvenju mikil á tímabilinu. Verðbætur teljast til vaxtamunar sem var því óvenju hár á fjórðungnum en það mun jafnast út yfir tíma og er markmið okkar nú sem fyrr að vaxtamunur verði á ársgrundvelli um eða rétt yfir þremur prósentum.
Það er óhætt að fullyrða að spennandi tímar séu fram undan nú þegar gervigreindin er að ryðja sér til rúms. Heimurinn stendur frammi fyrir því sem kann að verða einhverjar hröðustu og umsvifamestu tækniframframfarir síðustu áratuga eða jafnvel alda. Við hjá Arion höfum allt frá því fyrstu notendavænu mállíkönin urðu aðgengileg undirbúið okkur undir þessar breytingar. Við erum vel í stakk búin að hagnýta okkur þessa öflugu tækni með það að markmiði að gera okkar þjónustu enn betri og persónulegri þannig að hún mæti betur þörfum og óskum hvers og eins.“
Fundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila 7. maí kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 7. maí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka mun fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans.
Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.
Fjárhagsdagatal
Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengsl Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760 eða Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, samskiptasvid@arionbanki.is, s. 856 7108.
Þessar upplýsingar eru birtar í samræmi við upplýsingaskyldu Arion banka hf. skv. reglugerð Evrópusambandsins um markaðssvik (MAR). Upplýsingarnar voru sendar til birtingar í gegnum ofangreinda tengiliði þann 2026-05-06 15:31 GMT.
Viðhengi
Arion Bank – Condensed Consolidated Interim Financial Statements 1 January – 31 March 2026
Q1 2026 Press Release Arion Bank
Arion Bank Q1 2026 Investor Presentation

Analys
Riksdagsvalet 2026
Inflation
Analys
Riksdagsvalet 2026
Inflation
1 DAG %
Senast
OMX Stockholm 30
2,83%
(vid stängning)
VBG Group
Idag, 14:36
VBG: Återhämtning i sikte?
OMX Stockholm 30
1 DAG %
Senast
3 159,33