Íslandsbanki hf.: Kaupréttaráætlun starfsfólks


6 augusti, 10:00

Á hluthafafundi í Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“ eða „bankinn“), þann 30. júní 2025 var stjórn bankans veitt heimild til að samþykkja kaupréttaráætlun byggða á 10. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 og gera á grundvelli hennar kaupréttarsamninga við allt starfsfólk bankans. Kaupréttaráætlunin var staðfest af ríkisskattstjóra þann 21. júlí síðastliðinn.

Nú hefur verið gengið frá kaupréttarsamningum við starfsfólk í samræmi við samþykkta kaupréttaráætlun. Kaupréttur samkvæmt áætluninni nær til alls fastráðins starfsfólks Íslandsbanka, að undanskildu starfsfólki innri endurskoðunar, og er markmið áætlunarinnar að tengja betur saman langtímahagsmuni starfsfólks og bankans.

Samkvæmt áætluninni öðlast hver kaupréttarhafi rétt til að kaupa hlut í Íslandsbanka fyrir allt að 1.500.000 krónur einu sinni á ári í fimm ár, eftir birtingu sex mánaða uppgjörs bankans árin 2026, 2027 og 2028, 2029 og 2030, samtals fyrir allt að 7.500.000 krónur.

Kaupverð hlutanna er vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf bankans í kauphöll síðustu tíu viðskiptadaga fyrir samningsdag, sem er 126,4 krónur á hvern hlut.

Alls gerðu 743 starfsmenn kaupréttarsamninga sem ná til allt að 8.817.181 hlutar á ári miðað við 100% nýtingu kauprétta.

Kaupréttaráætlun Íslandsbanka er meðfylgjandi.

Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is

Viðhengi
Kaupréttaráætlun Íslandsbanka Undirrituð Af LJ Og Stimpluð Af RSK

Läs mer på MFN



Marknadsöversikt

1 DAG %

Senast

1 mån
Senaste aktieanalyserna på Placera
Kollage Analys Ny
Privatekonomi med Placeras expert
Karolina Placera

Karolina Palutko Macéus skriver om allt som har med privatekonomi att göra och hur du kan få mer pengar i plånboken.

Affärsvärlden
AFV

Är du kund hos Avanza? Just nu kan du få en unik rabatt på Affärsvärlden. Afv har 28 år i rad utsetts till Sveriges bästa affärsmagasin i en undersökning med börs-VD:ar, finanschefer, IR-chefer och aktieproffs.

Annons
Introduce

för börsens små- och medelstora företag.

Annons
Investtech

Här hittar du våra artiklar om teknisk analys i samarbete med Investtech.