Íslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Igår, 19:19

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 3.760 m.kr.

Öllum tilboðum var hafnað í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 28. Heildartilboð voru 1.880 m.kr. á álagi á bilinu 0,09% til 0,15%.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 32 voru samtals 1.400 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,43%. Heildartilboð voru 1.880 m.kr. á bilinu 3,40% til 3,48%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Heildarstærð flokks er 40.000 m.kr. og þar af eru 16.540 m.kr. til eigin nota eftir útboðið.

Uppgjör viðskipta fer fram þann 29. júní 2026.

Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.

Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is
Fyrirspurnir frá fjölmiðlum, pr@islandsbanki.is

Läs mer på MFN



Marknadsöversikt

1 DAG %

Senast

1 mån