Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


16 december, 16:35

Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um þann 11. nóvember sl. er nú lokið.

Í viku 51 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.123.000 eigin hluti að kaupverði 42.000.200 kr., í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning
Tími
Keyptir hlutir
Viðskiptaverð (gengi)
Kaupverð (kr.)
15.12.2025
14:26
1.000.000
37,40
37.400.000
16.12.2025
10:13
123.000
37,40
4.600.200
Samtals
1.123.000
42.000.200

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 11. nóvember 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026. Endurkaupum hefur nú verið lokið.

Heimar áttu 53.400.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 54.523.000 hluti, eða um 2,7% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.984.726.375 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is

Viðhengi
Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Läs mer på MFN



Marknadsöversikt

1 DAG %

Senast

1 mån